DRÍFUVINAFÉLAGIÐ

STOFNAÐ 2005

Veiðisafnið á Stokkseyri í samvinnu við afkomendur Jóns Björnssonar byssusmiðs frá Dalvík stóðu fyrir stofnun Drífuvinafélagsins laugardaginn 12.mars 2005 í húsakynnum Veiðisafnsins Eyrarbraut 49 – Stokkseyri og teljast stofnfélagar vera um 130.

Drífurnar frá Dalvík

Jón Björnsson fæddur 16.október 1907 er án efa afkastamesti byssusmiður er uppi hefur verið á Íslandi, en hann lést 7. janúar 1991. 

Nefndi hann byssur sínar DRÍFUR og er einstakt í Íslandssögunni að einn og sami maðurinn hafi smíðað á annað hundrað haglabyssur en þær eru á bilinu 120.  Allar þessar haglabyssur eru 12ga. 3”, með boltalás og hlauplangar, listasmíði og einstakar sem söfnunargripir komandi kynslóða. Margir veiði- og byssumenn, á Íslandi í dag hafa heyrt af þessum byssum Jóns, en það ber að nefna að sjaldan koma þær í endursölu og vitað er um einstaklinga sem eiga fleiri en tvær.

Eitt af markmiðum Drífuvinafélagsins er að heildarsamantekt á fjölda og útgáfum ásamt númeraröðun þeirra eigenda er þess óska verði aðgengileg á einum stað og er heimasíða félagsins hýst hér á www.hunting.is í boði Veiðisafnsins og hér má finna helstu upplýsingum um Jón Björnsson og Drífurnar frá Dalvík. Veiðisafnið hefur einnig í samráði við afkomendur Jóns sett upp til sýningar muni og nokkur verkfæri Jóns ásamt byssu nr.144 og 145 en fyrsta Drífan var merkt nr.101.

 

Jón Björnsson

Jón Björnsson er fæddur í Göngustaðakoti í Svarfaðardal, búsettur á Dalvík, var húsgagnasmiður að mennt og vann við húsgagnasmíði og húsbyggingar í mörg ár, en um 1977 fór hann að fást við byssusmíði.

Áður hafði hann ásamt trésmíðinni gert við byssur, m.a. smíðað skefti, fjaðrir, pinna ofl. og er Marlin Goose Gun sem nágranni Jóns, Helgi Jakobsson átti að öllum líkindum fyrirmynd hans að Drífu haglabyssunum sem hann smíðaði á árunum 1977 – 1990, flestar einsskota, 120 númeruð eintök og eru fyrstu byssurnar skráðar 1978. Jón númeraði allar sínar byssur og er vitað að hann byrjaði á númerinu 101 og er Drífa númer 220 síðasta byssan sem hann smíðaði árið 1990 þá 83 ára gamall. 

Þegar fyrsta Drífan nr.101 og síðasta nr. 220 eru bornar saman kemur fram dálítill munur er snýr að innri smíði og frágangi, bæði vinnu og efnislega en ytra útlit er ekki svo frábrugðið að undanskildum skeftum og bláma, gildir það reyndar um Drífurnar flestar og ef reynt er að flytja bolta á milli lása, kemur í ljós að sérsmíðin er það mikil hjá Jóni að boltar ganga ekki á milli ólíkra lása, ólíkt því sem þekkist af verksmiðjusmíðuðum hlutum, byssutengdum. Þar sem Jón hafði ekki tök á að rafsjóða, svo sem láshús og boltafestingu á hlaup fyrir skefti, varð hann að fá þessa vinnu unna af öðrum.

Birnir sonur hans sá um efnispöntun og suðuvinnu ásamt Jóhannesi Hafsteinssyni sem aðstoðaði Jón með suðu og fleira, einnig aðstoðuðu þeir hann við borun og bláma, voru fyrstu Drífurnar kaldblámaðar, en fljótlega fór Jón að heitbláma byssurnar og var það frændi hans, Ásmundur Jónsson kennari á Akureyri sem útvegaði formúluna frá USA. 
Annar frændi Jóns, Hjálmar Randversson var honum innan handar með heitblámun og voru oftast blámuð tvö hlaup í sama sinnið í bakka sem Jón hafði smíðað ásamt festingum fyrir hlaupin, upphitað með gasi, hélt annar á og hinn hitaði.  Einnig blámuðu þeir oft marga smáhluti í einu, uppþrædda á vír og vitað er að eldri byssur (kaldblámaðar) voru pússaðar upp og heitblámaðar. Aftara sigti á hlaupin var silfurkveikt og það fremra snittað.

Boltaefnið fékk Jón m.a.úr afgöngum af skrúfuöxlum á Dalvík og Birnir sonur Jóns sá einnig um að panta skrúfuöxla sem þá voru framleiddir fyrir Sabb bátavélar og líkaði Jóni vel en þetta notaði hann í boltann sjálfan en öxulstál notaði hann í láshúsið og efnisrör í hlaupin úr mjúku stáli, útborað 16mm og síðan vann hann þau með handborvél, fræsara og í rennibekk upp í 18 mm nema fremst þar sem þau eru um 17 mm og vitað er að hann smíðaði sín verkfæri sjálfur, ef þannig stóð á m.a borinn sem hann notaði við hlaupin, efni kom frá Nathan & Olsen og Sindra í Reykjavík. Haft er eftir Jóni að vinnan við hlaupin væri misjöfn, það færi mikið eftir framleiðanda, oft væru eitlar í efninu eða það kom bogið og tók það Jón um 3-4 vikur að fullgera byssu.

Sonarsonur Jóns, Jón Björn Bragason merkti talsvert af Drífunum fyrir afa sinn með sérstakri vél, líklega eftir framleiðslunúmer 160 því fram að þeim tíma merkti Jón allar byssurnar með höggstöfum, en oftast vann hann að tveimur byssum í einu . Jón Björn merkti líka fyrir afa sinn, með sömu vél, framleiðsluár á þó nokkrar Drífur, oftast á láshúsið neðanvert undir skefti, sumar beint á hlið.

Drífurnar eru með boltalás, að hluta til úr ryðfríu stáli og voru þær breytilegar hvað varðar skefti, hlaup, áferð og fl., en Jón smíðaði allt er notað var í byssur sínar, notaði hann m.a. tinda úr heyvinnuvélum og flatjárn úr sparksleðmeiðum til smíðanna, jafnframt notaði hann ventlagorma í útdragarana og vitað er að hann hafði áhuga á því að fá byssurnar þrýstiprófaðar erlendis, en af því varð nú aldrei. Skeftin voru úr Beyki en einnig smíðaði hann nokkur skefti úr Ramin og voru þau lökkuð með Leifturlakki, eru þau flest áþekk að lit og lögun, með frávikum þó er á leið og ber að nefna fingurgróf á allmörgum af síðustu Drífunum. Eitt stærsta vandamál Jóns virðist hafa verið skortur á efni til smíðanna en sparksleðastálið hitaði hann rauðglóandi og dýfði því svo í bráðið blý til herðingar, var það notað í pinnann í boltanum..  Ekki vildi Jón selja hverjum sem var haglabyssu og er vitað að hann fann fljótt inn á menn, í samtölum og jafnvel í síma, hvort viðkomandi væri verðugur Drífueigandi og voru margir á biðlista um byssur þegar hann lést.

Magasínbyssur eru til sem taka tvö skot í laust magasín og eitt í hlaup, samtals þrjú skot og smíðaði Jón þær allar á svipuðum tíma en þá þegar hafði hann gert eina tveggjaskota byssu sem tók tvö skot hvort ofan á annað, eigandi hennar er Gunnar sonur Jóns. Voru Jóni útveguð tilbúin magasín frá Savage í USA árið 1986 samtals 8 stykki, vitað er að hann framleiddi 5 Drífur með magasínum, eitt gekk af og er það til, enn í umbúðum og tveir fengu tvö. Smíðar Jóns voru ekki eingöngu bysssutengdar og ekki er hægt að tala um Jón Björnsson á annan hátt en snillingum sæmir, hann smíðaði m.a. tauþvottavél um 1950, fiðlu sem hann spilaði á sjálfur, standborvélar, rafmagnshefla steypta úr áli, einnig smíðaði hann úr kopar, litla rokka, kleinu og laufabrauðsjárn, kertastjaka, silfurbúna skeiðarhnífa, tóbakspontur, píska, verkfæri og fl., þar á meðal riffil, að undanskildu hlaupinu og er hann til, fram hefur komið í viðtölum við Jón að fyrstu byssuna smíðaði hann 12 ára, var það skammbyssa, einsskota fyrir lítil riffilskot, líklega .22cal.

Í viðtölum við Jón kemur einnig fram að hann hafi ekki veitt með Drífu en vitað er að Jón gekk til rjúpna á yngri árum. Byssusmíði Jóns hefur án efa mælst misvel fyrir á Dalvík á sínum tíma og ekki nema eðlilegt að allir hafi ekki verið hrifnir af þessari framleiðslu, hitt er annað að hér er um einstakt framtak að ræða og ætti að kynna til komandi kynslóða sem stórt afrek í íslenskri iðnaðarsögu.

Páll Reynisson/Veiðisafnið

Aðrar heimildir um Jón Björnsson:

  • DV laugardagur 26.janúar 1985 
    – viðtal Ólafur B. Thoroddsen
  • Dagur Akureyri föstudagur 29.nóvember 1985 
    – viðtal Gestur Einar Jónsson
  • Sportveiðiblaðið 1987 
    – viðtal Gylfi Kristjánsson
  • Iðnaðarmenn I - bók útgefin af IÐNÚ útgáfunni 1987 
    Útgáfunefnd: 
    Atli Rafn Kristinsson 
    Jón Böðvarsson 
    Sigurður Kristinsson

Eigendur

Félagar geta allir orðið sem eiga Drífur og /eða hafa áhuga á Drífum og skotvopnum og veiðum allmennt, skráning er öllum að kostnaðarlausu.

Óskað er eftir því að sem flestir Drífueigendur skrái sig/sínar byssur í félagið svo halda megi á einum stað upplýsingum sem og framtíðarskráningu, er þetta eitt af fyrstu rannsóknarverkefnum Veiðisafnsins ses. sem tengist skotveiðum á Íslandi.

Eigendaskrá

101 Bragi Jónsson
102 Sigurgeir Jónsson
103 Hjálmar Örn Jónsson
104 Hjálmar Randversson
105 Ingvi Antonsson
106 Elvar Magnússon
107 Valdimar Snorrason
108 Pálmi Almarsson
109 Ófeigur Sigurðsson
110 Willard Helgason
111 Ingólfur Magnússon
112 Baldur Hjörleifsson
113 Sigurhjörtur Þórarinsson
114 Hilmar Daníelsson
115 Kristján Þórhallsson
116 Björn Már Björnsson
117 Lúðvík S. Friðbertsson
118 Reimar Þorleifsson
119 Jón H Pálsson
120 Skarphéðinn Sigtryggson
121 Árni Halldórsson
122 Jóhannes Bjarmarsson
123 Jóhann H. Guðjósson
124 Gunnar Jónsson
125 Guðmundur H. Halldórsson
126 Olgeir H. Ragnarsson
127 Guðrún Hlín Brynjarsdóttir
128 Bjarni Sigurjónsson
129 Tyrfingur Halldórsson
130 Bjarni S Jakobsson
131 Össur Willard
132 Sigurður Valgarðsson
133 Ólafur Sigurðsson
134 Björgvin R. Kjartansson
135 Gauti M. Rúnarsson
136 Sigurður J. Jóhannsson
137 Steinar Ólafsson
138 Óskar nafnleyndar
139 Már Kristinsson
140 Guðbjörn Björnsson
141 Aðalsteinn Sigurðarsson
142 Ingvi Örn Ingvason
143 Óskar nafnleyndar
144 Veiðisafnið
145 Óskar nafnleyndar
146 Hermann B. Haraldsson
147 Sigurjón Karlsson
148 Óli Þ. Jóhannsson
149 Hólmgrímur Kjartansson
150 Ingi Sigurjónsson
151 Eggert Lárusson
152 Albert Baldursson
153 Örlygur Arnljótsson
154 Hlynur Sigurgeirsson
155 Ottó Freyr Ottósson
156 Brynjar Kristmundsson
157 Daníel Þórarinsson
158 Bjarki Pétursson
159 Björn Már Björnsson
160 Friðrik Hróbjartsson
161 Guðmundur Hermannsson
162 Óskar nafnleyndar
163 Róbert Melax
164 Óskar nafnleyndar
165 Ivan G. N. Brynjarsson
166 Svanþór Eyþórsson
167 Pétur V. Jónsson
168 Árni Halldórsson
169 Hrafn Hrafnsson
170 Valgeir A. Þórisson
171 Óskar nafnleyndar
172 Halldór Almarsson
173 Baldur Sigurðsson
174 Sveinn S. Helgason
175 Óskar Valgarðsson
176 Unnsteinn R. Kárason
177 Bergþór Hávarðsson
178 Stefán Hallgrímsson
179 Jón Pálmason
180 Jón H. Gunnarsson
181 Jón A Barðdal
182 Haukur Konráðsson
183 Ottó Freyr Ottósson
184 Halldór Fannar
185 Kristján S. Ólafsson
186 Jóhann Ólafsson
187 Gauti M. Rúnarsson
188 Svanur Rafnsson
189 Jón Brynjar Kristjánsson
190 Gísli H. Jónsson
191 Kjartan Lillendahl
192 Hilmar H. Aadnegard
193 Óskar V. Bjarnason
194 Gústav J. Daníelssson
195 Stefán Brimdal
196 Jón B. Bragason
197 Albert Baldursson
198 Stefán K Guðnason
199 Jóhannes Hafsteinsson
200 Þór Ingvason
201 Stefán Arngrímsson
202 Jóhann Ó Halldórsson
203 Pétur V. Jónsson
204 Svanur B. Ottóson
205 Einar Kristjánsson
206 Snjólfur Gíslason
207 Óskar nafnleyndar
208 Egill Herbertsson
209 Sveinn Ríkharðsson
210 Brynjar H. Jónsson
211 Leifur Harðarson
212 Óskar nafnleyndar
213 Sigurður Sveinsson
214 Óskar nafnleyndar
215 Drífa Einarsdóttir
216 Össur Willard
217 Ingvar Hermannsson
218 Sigurjón J. Friðriksson
219 Byggðarsafnið Hvoll - Dalvík
220 Birkir Bragason